ARNA INGA ARNÓRSDÓTTIR
Luminous Desire
Þessi lína er mín leið til að skilgreina hina valdamiklu konu. Konu sem á líkama sinn algjörlega sjálf, er kynvera án skammar – og þannig á einhvern hátt ósnertanleg svo það lýsir af henni, næstum eins og hún sé af annarri plánetu. Frá því að ég byrjaði að þroskast og verða að konu hef ég alltaf falið mig í skugga þeirra sem eru í kringum mig, ég hef verið hrædd við að taka mitt pláss og mér leið eins og mitt hlutverk á jörðinni væri að þjóna öðrum. Undanfarið hef ég þó verið að æfa mig í að taka meira pláss, vera sjálfsörugg og skammast mín ekki fyrir að vera kynvera. Kvenlíkaminn hefur í gegnum söguna verið kyngerður en á sama tíma hefur samfélagið sagt konum að skammast sín fyrir kynlöngun sína. Tímarnir eru að breytast og mér líður eins og umræðan um kynlíf séu orðin mun opnari.-